Fara í efni
Fréttir

Óskað eftir vitnum að átökum í miðbænum

Lögreglan á Akureyri óskar eftir vitnum eða upplýsingum vegna atviks er varð á bílastæði við Hofsbót sunnan við BSO um klukkan 15.30 í dag.

„Þar virðast tveir aðilar hafa átt í átökum og að veist hafi verið að þriðja aðila, sem kom þar að,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.

„Vitað er að nokkur vitni voru að atvikinu en lögregla hefur ekki náð til allra. Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um málið og ekki hefur þegar verið haft samband við er bent á að hafa samband við lögregluna á Akureyri,“ segir í tilkynningunni – bent er á að hægt er að senda skilaboð hér á Facebook eða hringja í 112.