Fara í efni
Fréttir

„Öryggismál verða alltaf í forgangi“

Flaggað er í hálfa stöng í dag við minnisvarðann um síðutogara og síðutogarasjómenn á Höepfnerssvæðinu á Akureyri. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Hugur okkar á þessari stundu er hjá sjómönnum Jökuls ÞH og fjölskyldum þeirra. Þrátt fyrir þá hörmulegu staðreynd að þrír sjómenn fórust eiga björgunaraðilar mikið hrós skilið fyrir björgunaraðgerðirnar í gær og í nótt, sem fóru fram við afar krefjandi og erfiðar aðstæður. Að ná fjórtán mönnum úr slíkum aðstæðum var algjört þrekvirki, um það er ekki deilt,“ segir Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, við akureyri.net.

Sjómenn ábyrgir þegar öryggismál eru annars vegar

Fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk austur af landinu síðdegis í gær. Allt tiltækt björgunarlið var virkjað og öll skip sem voru á veiðum á svæðinu sigldu í áttina að slysstað. Í áhöfn Jökuls voru sautján manns og náðist við afar krefjandi aðstæður að bjarga fjórtán þeirra.

„Eins ömurlegar og þessar fréttir eru er líka rétt að hafa í huga að slysum til sjós hefur fækkað umtalsvert á síðustu árum, meðal annars með tilkomu Slysavarnarskóla sjómanna og hugarfarsbreytinga sjómanna til áhættunnar sem fylgir starfinu. Ég fullyrði að sjómenn taka öll öryggismál af mikilli ábyrgð og festu,“ segir Trausti.

Flaggað var í hálfa stöng við Útgerðarfélag Akureyringa í dag. Skuttogarinn Harðbakur EA, skip Samherja, var meðal fyrstu skipa sem komu á slysstað þegar fiskiskipið Jökull ÞH-299 sökk úti fyrir Austurlandi í gær. Mynd: Karl Eskil Pálsson.

Hafa ályktað um öryggismál árum saman

Hann segir mikilvægt að hlúa að sjómönnunum og aðstandendum þeirra með sem víðtækustum hætti. Umræðan um öryggismál hafi á undanförnum áratugum verið mjög lifandi milli útgerða og stéttarfélaga. Markmiðin hafi alltaf verið sameiginleg: að fækka slysum til sjós.

„Á þingum Sjómannasambands Íslands hefur undanfarna áratugi ávallt verið ályktað sérstaklega um öryggismál og á því verður sjálfsagt engin breyting. Sjómannafélag Eyjafjarðar hefur sömuleiðis alla tíð látið sig öryggismálin varða og ég leyfi mér að fullyrða að samstarfið við útgerðarfélög á félagssvæðinu hafi verið til fyrirmyndar. Ég tek eftir háværri umræðu í dag á samfélagsmiðlum um staðsetningu þyrlu og þá einkum á Akureyri. Það gefur í raun auga leið að öryggi sjómanna eykst með því að staðsetja björgunarþyrlu fyrir norðan og ég tel að allir innviðir séu fyrir hendi á Akureyri til að efla Landhelgisgæsluna með þessum hætti. Í samtölum mínum í dag við félagsmenn hef ég hins vegar bent á að bíða með slíka umræðu á meðan þjóðin syrgir,“ segir Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar.

Flaggað er í hálfa stöng í dag við minnisvarðann um síðutogara og síðutogarasjómenn á Höepfnerssvæðinu á Akureyri og þrjú ljós loguðu við minnismerkið um týnda og drukknaða sjómenn utan við Glerárkirkju. Mynd: Skapti Hallgrímsson og af Facebook síðu Glerárkirkju.