Fara í efni
Fréttir

Opnað fyrir tilnefningar til viðurkenninga FKA

Viðurkenningarhátíðin 2026. Frá vinstri, Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir formaður FKA, Erna Magnúsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Eva María Þórarinsdóttir Lange, Hanna Katrín Friðriksson og Þuríður H. Aradóttir Braun formaður dómnefndar. Mynd: Silla Páls Mirror Rose

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru í tilkynningu hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, sýnt frumkvæði eða verið öðrum fyrirmynd. Tilnefna má í einum eða fleiri flokkum til og með 22. nóvember.

Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) konur fyrir framlag þeirra til atvinnulífs og samfélags með FKA Viðurkenningunni, Hvatningarviðurkenningu FKA og Þakkarviðurkenningu FKA.

„Hverja vilt þú sjá heiðraða?“ spyr FKA. „Vertu hreyfiafl, hafðu áhrif á valið með að tilnefna!“

  • Smellið HÉR til að tilnefna

Fjöldi tilnefninga og vandasamt val

Síðasta Viðurkenningarhátíð FKA fór fram í janúar á þessu ári. Þá voru Eva María Þórarinsdóttir Lange, stofnandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland, Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, utanríkisráðherra og forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, heiðraðar.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, lengst til vinstri, flutti erindi á hátíðinni síðast, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ásta Fjeldsted forstjóri Festi, Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir formaður FKA og Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA sem stýrði dagskrá kvöldsins. Mynd: Silla Páls Mirror Rose

Viðurkenningarhátíðin fer næst fram miðvikudaginn 20. janúar 2027 á Hótel Reykjavík Grand „þar sem við komum saman og fögnum viðurkenningarhöfum ársins,“ segir í tilkynningu FKA. „Tilnefningar berast víðs vegar að af landinu og fer dómnefnd yfir tilnefningar í öllum flokkum. Úr vöndu er að ráða, enda margar konur sem hafa lagt sitt af mörkum í atvinnulífinu og samfélaginu öllu.“

Hvaða konur hafa fengið viðurkenningu hingað til? 

Smellið hér til að sjá listann frá upphafi.