Fara í efni
Fréttir

Opinn fundur ráðherra um málefni fatlaðs fólks

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, býður um þessar mundir til opinna samráðsfunda víða um land þar sem fjallað er um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra, að því er kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma. Ráðherra verður í menningarhúsinu Hofi á Akureyri mánudaginn 19. júní kl. 17.00.

„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks skuli lögfestur á kjörtímabilinu. Undir lok árs í fyrra var hleypt af stokkunum umfangsmikilli vinnu við gerð landsáætlunar til að tryggja farsæla innleiðingu samningsins. Grundvallarhugmyndin er sú að fatlað fólk, hagsmunasamtök þess, ríki, sveitarfélög og almenningur vinni saman sem jafningjar að því að móta tillögur að verkefnum sem bæta stöðu fatlaðs fólks og tengjast samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“

Á fundunum mun ráðherra flytja opnunarávarp og kynnt verða nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða verður kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga.

„Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Smellið hér til að skrá þátttöku á fundinum í Hofi.

  • Tekið er fram að ef þörf er á táknmálstúlkun, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð sé mikilvægt að það komi fram við skráningu.