Opið hús og kynning á starfi Samfrímúrara
Alþjóða Samfrímúrarareglan verður með opið hús að Óseyri 2 á morgun, laugardaginn 14. febrúar frá kl. 14 til 17. Yfirmaður reglunnar á Íslandi, Magnús M. Norðdahl, verður með kynningu á reglustarfinu.
Alþjóða Samfrímúrarareglan LE DROIT HUMAIN er alþjóðleg regla með höfuðstöðvar sínar í París og hefur starfað á Íslandi frá 1921. Í henni starfa einstaklingar saman að mannrækt til heilla mannkyni, óháð kyni, þjóðerni, litarhætti og trúarskoðunum. Hún kallar eftir frelsi, jafnrétti og bræðralagi en það eru jafnframt hin þreföldu einkunnarorð hennar, eins og segir í kynningu á reglunni á vefsíðu hennar. Reglan veitir viðtöku einstaklingum 18 ára og eldri.
Á vefsíðunni segir ennfremur um regluna:
Við erum ekki leynifélag en útlistum ekki allt sem við gerum. Þannig er leynd um sumt en annað ekki. Við komum saman sem jafningjar, viðurkennum hvert annað eins og við erum og hjálpumst að í sameiginlegri leit að skilningi. Við skilyrðum ekki sannleikann en leitum hans með einföldum verkfærum sem fylgt hafa mannkyni í árþúsundir.
Heitt verður á könnunni á laugardaginn og allir eru velkomnir á kynninguna á starfi reglunnar.