Opið fyrir umsóknir í Startup Landið

Opið er fyrir umsóknir í Startup Landið, sjö vikna viðskiptahraðal sem ætlaður er frumkvöðlum og nýsköpunarverkefnum á landsbyggðunum. Hraðallinn hefst 18. september og lýkur með lokaviðburði 30. október þar sem þátttakendur kynna verkefni sín. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SSNE, Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra.
Startup Landið veitir þátttakendum aðgang að sérfræðiráðgjöf, tengslaneti og möguleikum á fjármögnun. „Markmiðið er að styðja við vöxt og þróun nýsköpunarverkefna sem eru komin af hugmyndastigi, hvort sem þau eru unnin af einstaklingum, sprotafyrirtækjum eða innan rótgróinna fyrirtækja,“ segir í tilkynningunni. Þar segir ennfremur:
Hvað býður hraðallinn upp á?
- Aðgang að reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum og fjárfestum
- Vinnustofur og fræðslufundi
- Tækifæri til að byggja upp öflugt tengslanet
- Tvær staðbundnar vinnustofur með þátttöku allra teyma
- Mestu leyti rafrænt fyrirkomulag sem hentar þátttakendum um allt land
Hverjir geta sótt um?
Leitast er eftir frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum á landsbyggðunum sem eru komin af hugmyndastigi og vilja þróa verkefnið sitt áfram með stuðningi sérfræðinga og tengslanets.
Umsóknarfrestur og skráning
- Umsóknarfrestur er til og með sunnudagsins 31. ágúst. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má finna hér.
- Startup Landið er samstarfsverkefni allra landshlutasamtakanna: SSNE, SSNV, Vestfjarðarstofu, Austurbrúar, SASS, SSS og SSV.