Fara í efni
Fréttir

Ólafur Ragnar verður heiðursdoktor við HA

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, verður gerður að heiðursdoktor við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri (HA) 30. september næstkomandi.

Sama dag verður haldin ráðstefna í skólanum undir yfirskriftinni Háskólar, lýðræði og Norðurslóðir – breytt heimsmynd þar sem forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og aðrir fræðimenn fjalla um og eiga orðastað við Ólaf um mikilvæga málaflokka þar sem forsetinn fyrrverandi hefur látið mikið að sér kveða, að því er fram kemur á vef Háskólans á Akureyri.

  • Öll eru velkomin á málþingið, sem stendur frá klukkan 10.00 til 15.00. Hér er hægt að skrá sig.

„Ólafur Ragnar Grímsson er hefur markað djúp spor í Íslandssöguna á farsælum ferli sem fræðimaður, þjóðhöfðingi og alþjóðlegur stjórnmálamaður,“ segir á vef HA.

„Ólafur Ragnar var brautryðjandi á sviði félagsvísinda á Íslandi og varð lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands 1970 og síðan prófessor þremur árum seinna. Hann haslaði sér snemma alþjóðlegan völl sem nafn innan stjórnmálafræðinnar og eftir hann liggja margar fræðigreinar í íslenskum og erlendum tímaritum.

Ólafur hefur ekki aðeins rannsakað stjórnmálin, þátttaka hans í þeim hefur verið veruleg, bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Á sínum pólitíska ferli var Ólafur ritstjóri, þingmaður og ráðherra og formaður Alþýðubandalagsins frá 1987 – 1995. Hann starfaði jafnframt á erlendum vettvangi og var meðal annars um árabil í forsvari fyrir alþjóðlegu þingmannasamtökin Parliamentarians for Global Action.“

Velvild og stuðningur

Á vef HA segir að forsetatíð Ólafs Ragnars hafi um margt verið sérstök og markað tímamót á ýmsum sviðum. „Ekki einungis sat hann lengur en áður hafði þekkst heldur mörkuðu ýmsar ákvarðanir hans og túlkun á stjórnskipuninni tímamót. Má í því sambandi nefna túlkun hans á ákvæðum stjórnarskrár um heimild forseta til að synja lögum staðfestingar.“

Á vef skólans segir ennfremur:

„Málefni Norðurslóða hafa lengi verið Ólafi Ragnari hugleikin og á umliðnum árum hefur hann verið í lykilhlutverki við að setja þá umræðu á dagskrá alþjóðasamfélagsins. Þar ber líklega hæst að hann er stofnandi Arctic Circle, stærsta og mikilvægasta vettvangs alþjóðlegrar umræðu um samvinnu og framtíð norðurslóða og í raun jarðarinnar allrar.

Háskólinn á Akureyri naut velvildar og stuðnings Ólafs Ragnars Grímssonar þegar skólinn markaði sér bás með áherslu á norðurslóðir, bæði meðan Ólafur var forseti og æ síðan. Þá eru fræðileg nálgun á stjórnskipun og stjórnmál í víðum skilningi meðal helstu viðfangsefna fræðafólks á Hug- og félagsvísindasviði Háskólans, en eins og að ofan greinir eru það svið þar sem Ólafur hefur látið ríkulega að sér kveða. Það er því mjög við hæfi og mikill heiður fyrir skólann að veita Ólafi Ragnari heiðursdoktorsnafnbót í félagsvísindum.“