Fara í efni
Fréttir

Ökumaður bílsins sem valt er ekki í lífshættu

Lögreglumenn að störfum á vettvangi í nótt. Bíllinn er gríðarlega mikið skemmdur eins og sjá má. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Ökumaður bílsins sem lenti út af Ólafsfjarðarvegi skömmu eftir miðnætti í nótt og valt er ekki í lífshættu. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu á Facebook  í dag en tekið er fram að ekki sé vitað um líðan hans að öðru leyti.

Bílnum var ekið var í norður þegar hann fór útaf veginum. Ökumaður var fluttur mikið slasaður á Sjúkrahúsið á Akureyri með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem staðsett var á Akureyri um helgina og „viðbragð því til fyrirmyndar“ eins og lögreglan orðar það.

Um 40.000 manns á Dalvík!

„Talið er að um 40.000 manns hafi sótt Fiskidaginn mikla á Dalvík um helgina. Lögregla var með töluvert viðbragð vegna hátíðarinnar, var vel mönnuð og naut aðstoðar sérsveitar. Aðgerðarstjórn var mönnuð á Akureyri og vettvangsstjórn á Dalvík. Þá starfaði fíkniefnateymi á hátíðinni með fíkniefnaleitarhund og undir lögreglu störfuðu gæslumenn á vegum samkomuhaldara,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Vert er að geta þess að íbúar í Dalvíkurbyggð eru rúmlega 1.900.

„Lögregla notaði löggæslumyndavélar við störf sín og löggæsludróna. Mikill fjöldi var á tjaldstæðum og í görðum við íbúðarhús auk þess sem töluverð umferð var til Dalvíkur um helgina,“ segir ennfremur á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
 
Hátíðin fór vel fram
 
„Hátíðin fór vel fram. Umferðarskipulag inn í bæinn og í Múlagöngum gekk vel sem og stýring inn á bílastæði. Mikill erill var hjá lögreglu en fá alvarlega mál hafa verið tilkynnt enn sem komið er. Ein alvarleg líkamsárás er til rannsóknar eftir helgina, 12 minniháttar fíkniefnamál, vopnalagabrot, eignaspjöll og nokkur fjöldi mála þar sem fyrirmælum lögreglu var ekki hlýtt. Fáir gistu fangageymslur. “
 
Embætti lögreglunnar segir í endingu í Facebook færslunni:
 
„Lögregla vill þakka forsvarsmönnum Fiskidagsins Mikla og öðrum viðbragðsaðilum fyrir gott samstarf við undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar. Viðbragðsaðilar héldu reglulega undibúningsfundi í aðdraganda hátíðarinnar og stöðufundi á meðan hátíðin fór fram. Þá vill lögregla koma á framfæri þakklæti til gesta og vegfarenda fyrir framkomu á hátíðinni og sýnda þolinmæði vegna tafa sem urðu á umferð vegna umferðarslyss.“