Ókeypis tækninámskeið fyrir 60 ára og eldri
Akureyrarbær býður fólki 60 ára og eldri á ókeypis námskeið í tæknilæsi þar sem farið verður yfir grunnatriði í notkun tölva og snjalltækja. Markmiðið er að efla tæknilæsi og auka öryggi við daglega notkun.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir helstu stillingar og notkun tölva og snjalltækja, rafræn skilríki og samskipti, heimabanka og aðra rafræna þjónustu. Einnig verður fjallað um netverslun, örugg kaup á netinu og netöryggi ásamt ýmsum gagnlegum ráðum fyrir daglega notkun.
Námskeiðið fer fram í Sölku í Víðilundi fimmtudaginn 1. október kl. 13-14:30. Snæbjörn Sigurðsson kennir og ekki þarf að skrá sig fyrirfram. Þátttaka er ókeypis.
Í frétt á vef Akureyrarbæjar kemur fram að í framhaldinu verði einnig í boði styttri námskeið fyrir minni hópa. Þar geta þátttakendur komið með eigin tölvur og snjalltæki og fengið aðstoð og leiðsögn við notkun þeirra.
Námskeiðið er hluti af Aðgerðaráætlun fyrir eldra fólk á Akureyri, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir fræðslu um notkun tölva og snjalltækja. Þar sem sífellt stærri hluti daglegs lífs fer fram með rafrænum hætti er lögð áhersla á að fólk hafi tækifæri til að öðlast þá grunnfærni sem þarf til að nýta sér þjónustuna á öruggan hátt.