Fara í efni
Fréttir

Ók upp á gangstétt og inn um glerhurð

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Ökumaður missti stjórn á bíl við verslunarkjarnann Kaupang við Mýrarveg um fimmleytið í dag með þeim afleiðingum að hann ók upp á gangstétt og í gegnum glerhurð við hlið inngangsins í Akureyrarapótek. Inn um þessar dyr liggur leiðin í fyrirtæki á efri hæðinni en sem betur fer var enginn á ferli, enda búið að loka apótekinu í dag. Engan sakaði því en bíllinn er stórskemmdur og var dreginn burt.