Fara í efni
Fréttir

Óðinn Svan verður í Kastljósi og íþróttum

Sleppir ekki þeim stóra! Óðinn Svan í vinnuferð fyrir RÚV. Ljósmynd: Björgvin Kolbeinsson

Óðinn Svan Óðinsson, sem síðustu misseri hefur verið fréttamaður hjá RÚV á Akureyri, lét formlega af störfum á fréttastofunni um áramót. Hann birtist áhorfendum í íþróttafréttatímum sjónvarpsins síðustu vikur nýliðins árs; var lánaður til íþróttadeildar RÚV þegar óvenju mikið var að gera vegna heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Óðinn Svan verður áfram á íþróttadeildinni í janúar og febrúar en frá og með 1. mars verður hann bæði þar og einn umsjónarmanna Kastljóss á RÚV.