Fara í efni
Fréttir

Óánægð eftir ferð með Strætó frá Reykjavík

Jonna Jónborg Sigurðardóttir. Mynd af Facebook síðu listakonunnar.

Listakonan Jonna Jónborg Sigurðardóttir segir farir sínar ekki sléttar. Í bréfi til forráðamanna Strætó lýsir hún mikilli óánægju vegna ferðar frá Reykjavík til Akureyrar að kvöldi 15. ágúst. Hún var skilin eftir í Staðarskála.

Jonna segir:

Þannig var að ég hafði sofið í vagninum og vaknaði í Staðarskála þegar 10 mín voru til brottfarar, ég stekk inn og kaupi mér pylsu og kaffi, kannski var afgreiðslan á kaffinu sein en þegar ég kem út sé ég á eftir strætó renna út planið og upp brekkuna. Ég reyndi að veifa og kalla en það bar ekki árangur.

Ég hringdi í þjónustusíma strætó, þegar ég var búinn að finna númer þá var kl.20.45

Þar var lokað, ég reyndi að finna bílstjórann á já.is því ég vissi að hann býr á Akureyri og fornafn hans, það bar ekki árangur.

Ég hljóp inn að athuga hvort þeir í afgreiðslunni hefðu eitthvert númer að hringja í, svarið var nei. Ég hringi aftur eftir að hafa skoðað strætó síðuna í þjónustu borð og ýtti á 1.

Þá var kl. 20.52 og ég náði sambandi við mann sem skoðaði málið bílstjórinn neitaði að koma til baka og þegar kl. 21.09 fékk ég samtal til baka um að ég yrði bara að sætta mig við þetta. Um borð í strætó í sætinu mínu var taska með lyfjunum mínum sem ég þarf að taka og poki úr fríhöfninni.

Ég fer inn í Staðarskála og geng á milli fólks og spyr hvort það sé að fara til Akureyrar og finn að lokum hjón sem gáfu mér far.

Við náðum að vera rétt á undan strætó að Hofi og ég öskureið segi við bílstjórann að hann ætti að telja inn í vagninn, ég lét ljót orð falla og sagði að hann væri meiri helvítis aumingi að geta ekki snúið við.

Hann benti á fríhafnarpokann minn sem var með tveimur áfengisflöskum í og sagði við mig að ég ætti að hætta að drekka en staðreyndin er sú að ég hef ekki smakkað áfengi í meira en àratug!

Ég er ösku ill yfir þessari strætó ferð og mér finnst að það eigi að vera neyðarnúmerið prentað á aðgöngumiðann.