Fara í efni
Fréttir

Nýtt sjúkrahússapótek á SAk tilbúið á árinu

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkrahúsinu á Akureyri 80 milljónir króna sem gerir kleift að ljúka framkvæmdum við nýtt sjúkrahússapótek spítalans. Framlagið kemur til viðbótar 120 milljónum króna sem ráðherra tryggði til verkefnisins í fyrra. Framkvæmdir hafa gengið vel og er þess vænst að hægt verði að ljúka þeim og hefja starfsemi í nýju sjúkrahússapóteki á þessu ári.

„Ríkar kröfur eru gerðar um aðstæður og skilyrði á sjúkrahússapótekum til að tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga. Þar fer t.d. fram blöndun frumubreytandi lyfja við krabbameinum og viðlíka verkefni sem kalla á sérhæfðar og öruggar aðstæður. Með nýju húsnæði verða aðstæður eins og best verður kosið og í samræmi við gildandi staðla um starfsemi af þessu tagi,“ segir á vef Stjórnarráðsins í dag.