Nýtt fyrirtæki á sviði sjávarútvegstækni
Hjónin Silfá Huld Bjarmadóttur og Elvar Stefánsson, fyrrverandi starfsmenn Vélfags, hafa stofnað fyrirtækið Mastur (MSTR ehf.) á sviði sjávarútvegstækni, í samstarfi við Micro ehf. í Hafnarfirði. Félagið sérhæfir sig í þjónustu, varahlutum og þróun búnaðar fyrir fiskvinnslu, að því er segir í tilkynningu.
Starfsemi Mastur felur meðal annars í sér þjónustu og viðhald á fiskvinnslubúnaði, sölu varahluta og áframhaldandi þróun lausna fyrir vinnslu, „með áherslu á áreiðanleika, gæði og hraða þjónustu,“ eins og það er orðað. „Fyrirtækið hefur þegar hafið starfsemi og hefur þegar lokið afhendingu fyrstu pantana til viðskiptavina. Unnið er að frekari verkefnum og afhendingum á næstu misserum.“
Stjórn félagsins skipa Magnús Rúnar Guðmundsson, stjórnarformaður, ásamt Silfá Huld Bjarmadóttur og Gunnari Óla Sölvasyni. Elvar Stefánsson er framkvæmdastjóri félagsins.