Nýr staður í miðbænum – Pítsa, píla og leikir
Fiesta er nafnið á nýjum afþreyingar- og veitingastað sem opnar við Ráðhústorg um mánaðamótin. Staðurinn er tengdur Vamos og vonast eigendur til þess að bæjarbúar og gestir taki fjölbreyttari afþreyingu í miðbænum fagnandi.
Að sögn Halldórs Kristins Harðarsonar, eins eigenda Vamos, er nýji staðurinn beintengdur við Vamos og verður innangengt á milli þeirra. Á Fiesta verður m.a. „shuffle-borð“ að finna, sem er borðspil sem minnir á krullu og hefur ekki áður verið í boði á Akureyri. Þá verða píluspjöld, pool-borð og svokallaður retro-spilakassi á staðnum. Eins verða líka fjölmörg sjónvörp á staðnum þar sem sýndir verða íþróttaviðburðir. „Við verðum með fjögur til sex píluspjöld, leikjapíluspjöld og venjuleg píluspjöld líka,“ segir Halldór.

Unnið er að opnun nýs afþreyingarsvæðis í tengslum við veitingastaðinn Vamos við Ráðhústorg á Akureyri. Nýi staðurinn mun heita Fiesta og stefnt er að opnun í byrjun júní.
Meira gert úr pítsunum
Rýmið sem hýsa mun Fiesta er við hliðina á Vamos en þar var áður fataverslun til margra ára. Að sögn Halldórs er um að ræða rými upp á um 270 fm. Samhliða breytingunum verður eldhús Vamos stækkað og matseðill þróaður áfram með fleiri smáréttum og nýjum pítsum. Halldór segir eldbakaðar pitsur hafi notið mikilla vinsælda hjá Vamos frá því þær voru fyrst kynntar til sögunnar. „Matvagninn hjá okkur sló í gegn í fyrra,“ segir hann og bætir við að kjötsúpan verði einnig á sínum stað en hún falli vel í geð hjá ferðamönnunum.

Nýr pítsaseðill verður kynntur í tengslum við opnunina á Fiesta. Þá mun smáréttum einnig fjölga.
Fjölbreyttari afþreying í miðbæinn
Halldór segir að meginmarkmiðið með opnun Fiesta sé að bæta við fjölbreyttari afþreyingu í miðbæinn. Þannig verður neðri hæð Vamos og viðbótin með Fiesta meira miðuð að mat, kokteilum og leikjum en efri hæð Vamos verður áfram nýtt fyrir dans- og skemmtanalíf síðar á kvöldin. Halldór segir að lengi hafi vantað meiri afþreyingu í miðbæ Akureyrar og telur hann nýja svæðið geta orðið vinsælan samkomustað, sérstaklega yfir stærri íþróttaviðburði í sumar eins og HM í fótbolta sem hefst í júní. Þá segir hann að einnig sé verið að skoða að setja upp sérstakt karókírými í húsnæðinu. Framkvæmdir standa nú yfir en Halldór segir að eigendur stefni að því að opna Fiesta þann 1. júní.

Á Fiesta verður að finna „shuffleboard-borð“, sem er leikur sem minnir að nokkru leyti á krullu og hefur notið vinsælda á börum erlendis.