Nýr kjúklingastaður í Iðunni mathöll
Nýr veitingastaður hefur verið opnaður í Iðunni mathöll á Glerártorgi, kjúklingastaðurinn Chikin. Staðurinn býður uppá djúpsteiktan kjúkling og er maturinn undir áhrifum bæði frá Bandaríkjunum og Kóreu.
Rekstraraðilar Chikin á Akureyri eru hjónin Ásrún Nicole Guðmundsdóttir og Kenji Kanan en þau reka einnig staðinn Wok to Walk sem er líka í mathöllinni. Þar er einnig að finna veitingastaðinn Pizza Populare og Chikin er því þriðji veitingastaðurinn í mathöllinni. Það eru þeir Atli Snær Rafnsson og Einar Örn Einarsson sem eru hugsuðurnir á bak við Chikin. „Til að byrja með mun staðurinn einbeita sér að tveimur kjúklingaborgurum, tveimur vefjum, vængjum, frönskum og örfáum smáréttum. Þetta þarf ekki að vera flókið. Við viljum einbeita okkur að því að gera fáa hluti, en gera þá virkilega vel,“ segir Atli Snær.

Í fréttatilkynningu frá Glerártorgi segir að Einar Örn hafi áratuga reynslu af rekstri veitingastaða, en hann stofnaði Serrano árið 2002 og er framkvæmdastjóri Zócalo, sem rekur m.a. veitingastaði í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Atli Snær er matreiðslumeistari og hefur unnið til margra verðlauna fyrir matargerð sína. Hann stofnaði veitingastaðina Kore og er rekstrarstjóri á Wok to Walk þar sem Einar Örn hefur verið framkvæmdastjóri.
