Fara í efni
Fréttir

Nýja stólalyftan gangsett laugardag

Nýja lyftan í Hlíðarfjalli. Mynd: Óskar Wild Ingólfsson.

Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli verður loksins tekin í notkun um helgina. Hún verður ræst kl. 13.00 á morgun, laugardaginn 19. febrúar, og gengur til kl. 16.00. Lyftan verður síðan í gangi á opnunartíma skíðasvæðisins næstu daga en ráðgert er að formleg vígsluathöfn verði haldin síðar. 

Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að á morgun sé spáð köldu en björtu hægviðri og lyftan verði því gangsett við kjöraðstæður í fjallinu. „Mikil eftirvænting er á meðal skíðafólks og má búast við að þónokkur biðröð myndist við nýju lyftuna enda margt fólk komið norður til að njóta útiveru og skíðamennsku á meðan vetrarfrí eru í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir þar.

Lengd nýju lyftunnar er 1.160 metrar og fallhæð 374 metrar. Lyftan ber 1.650 manns á klukkustund og tekur um átta mínútur að komast á leiðaranda. Lyftuna átti upphaflega að taka í notkun í árslok 2018 en það tafðist af margvíslegum ástæðum.

Lyftan er framleidd af Doppelmayr, var keypt notuð frá Austurríki og sett upp af fyrirtækinu Pro-Alpin sem sérhæfir sig í kaupum og sölu á notuðum lyftum. „Stór hluti búnaðarins í lyftunni hefur verið endurnýjaður, þ.á m. tölvustýring hennar sem er flunkuný og er allur stjórnbúnaður eins og um nýja lyftu væri að ræða. Öll lyftumöstur eru með sérstökum nemum sem sýna í rauntíma hvernig allur búnaður virkar,“ segir í tilkynningu frá bænum.

Þar segir einnig að vegna aðstæðna og mikils bratta svo hátt í fjallinu, verði lyftan eingöngu notuð þegar skyggni er gott og snjóflóðahætta í lágmarki.