Fara í efni
Fréttir

Nýir starfsmenn svæðisstöðvanna

Guðlaugur Arnarsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri svæðisstöðva íþróttahéraðanna.

Guðlaugur Arnarsson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra svæðisstöðva íþróttahéraðanna, samstarfsverkefnis ÍSÍ og UMFÍ. Hann mun hafa umsjón með og vinna með öðrum að því að samræma starf þeirra átta svæðisstöðva sem eru um landið. Einnig eru tveir nýir starfsmenn svæðisstöðvanna komnir til starfa. Það eru þau Jóna Lind Kristjánsdóttir, svæðisfulltrúi á Vestfjörðum, og Jónas Halldór Friðriksson, sem er nýr svæðisfulltrúi á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ).

Jónas Halldór tekur við af Kristjáni Sturlusyni og verður með starfsstöð á Húsavík. Hann verður annar tveggja svæðisfulltrúa á Norðurlandi eystra en tveir svæðisfulltrúar starfa á hverju hinna átta svæðisstöðva. Hann er menntaður fjölmiðlafræðingur og trésmiður og hefur á undanförnum árum starfað sem framkvæmdastjóri íþróttafélagsins Völsungs. Þá hefur hann um árabil komið að þjálfun og starfi innan íþróttahreyfingarinnar.

Jónas Halldór Friðriksson, annar tveggja svæðisfulltrúa á Norðurlandi eystra.

Í fréttatilkynningunni frá ÍSÍ og UMFÍ segir Jónas að hlutverk svæðisfulltrúanna hafi orðið sífellt mikilvægara eftir því sem kröfur til íþróttafélaga hafi aukist. „Svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna eru mikilvægir málsvarar íþróttahreyfingarinnar út á við, bæði gagnvart ríki og sveitarfélögum,“ segir Jónas. Hann bendir á að íþróttafélög sinni sífellt fjölbreyttari og umfangsmeiri þjónustu en áður. „Það eru orðnar svo miklar kröfur á allt innan íþróttahreyfingarinnar, bæði frá foreldrum, ríki og sveitarfélögum um þá þjónustu sem íþróttafélögin veita. En íþróttahreyfingin á ekki sterka málsvara. Svæðisfulltrúarnir eru því góður stuðningur við íþróttafélögin í landinu.“

Mikilvægt fyrir alla landshluta

Samhliða ráðningu Jónasar hefur Guðlaugur Arnarsson verið ráðinn verkefnastjóri svæðisstöðva íþróttahéraðanna. Í því starfi mun hann hafa yfirumsjón með starfsemi allra átta svæðisstöðvanna og vinna að samræmingu verkefna þeirra um land allt. Guðlaugur hefur á síðustu árum starfað við stjórnun, verkefnastjórnun og stefnumótun, auk þess að hafa víðtæka reynslu af teymisvinnu og þróunarverkefnum. Hann þekkir einnig vel til íþróttahreyfingarinnar eftir að hafa starfað sem þjálfari um árabil.

Guðlaugur er Húsvíkingur og var lengi áberandi í handknattleik, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann lék um árabil í efstu deild hér á landi og einnig erlendis. „Þetta er áhugavert verkefni sem er gríðarlega mikilvægt fyrir alla landshluta og tilhlökkun hjá mér að hafa áhrif á góð verk sem þar eru unnin,“ segir Guðlaugur um nýja starfið.

Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna eru samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytisins. Þær hófu starfsemi haustið 2024 og hafa það hlutverk að styðja við íþróttahéruð og íþróttafélög um land allt, innleiða stefnu íþróttahreyfingarinnar og vinna að aukinni þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi, meðal annars meðal barna með fatlanir, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.