Fara í efni
Fréttir

Nú skal plokkað til að koma bænum í sparifötin

Frá stóra plokkdeginum fyrir nokkrum misserum. Ljósmynd: Guðmundur Baldvin Guðmundsson

Stóri plokkdagurinn verður haldinn á sunnudaginn, 24. apríl, og þá eru Akureyringar og landsmenn allir hvattir til að tína rusl – plokka, eins og það er kallað.

„Nú er frábær tími til að hreinsa bæinn okkar og koma honum í sparifötin fyrir sumarið, enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hopar á vorin. Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska,“ segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

„Í Facebook-hópnum Plokk á Akureyri er tilvalið að hafa samband við aðra plokkara, merkja sér svæði til að hreinsa og láta vita hvernig gengur með máli og myndum.“

Afrakstur plokksins má skilja eftir í sérstökum gámum sem settir hafa verið við allar grenndarstöðvar bæjarins og verða þar þangað til á mánudaginn.