Fara í efni
Fréttir

Nova býður nú upp á ljósleiðara á Akureyri

Starfsfólk Nova á Akureyri: Guðrún Huld Gunnarsdóttir, Aníta Líf Valgarðsdóttir og Bergrún Bjarnadóttir.

Íbúum Akureyrar gefst nú í fyrsta sinn tækifæri til að vera með ljósleiðara frá Nova. Félagið hefur gert samstarfssamning við Tengir, fjarskiptafélag í eigu Akureyringa, sem auðveldar bæjarbúum að fá háhraða nettengingu inn á heimilið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nova.

„Áður bauð Nova upp á heimatengingar á svæðinu í gegnum 5G en sökum landfræðilegra takmarkanna hefur Nova ekki getað boðið upp á ljósleiðara á svæðinu fyrr en nú. Akureyringar geta sótt um ljósleiðara hjá Nova strax í dag,“ segir í tilkynningunni.

Tengir á sér langa sögu á Akureyri. Fyrirtækið var stofnað árið 2002 með það markmið að byggja upp ljósleiðaranet á Eyjafjarðarsvæðinu. Finna má ljósleiðara fyrirtækisins í fjölda sveitarfélaga á Norður- og Austurlandi, til að mynda á Dalvík, Vopnafirði og Fjallabyggð, segir í tilkynningu Nova.

Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastjóri Nova upplifunar.

Nova hefur boðið uppá ljósleiðara síðan 2016 og hóf 5G byltinguna á Akureyri árið 2021. „Nova á sér langa sögu á Akureyri en fyrsta verslunin var opnuð árið 2008 við góðar undirtektir. Verslunin tók síðan miklum breytingum í fyrra en þá var hún færð inn í Glerártorg.“

Frábært skref

„Þetta er frábært skref bæði fyrir okkur og íbúa Akureyrar. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga frá heimamönnum á Akureyri um að fá ljósleiðara hjá okkur og núna getum við loksins veitt þeim þá þjónustu. Þau hjá Tengi búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á svæðinu og við hlökkum til að láta finna fyrir okkur á Akureyri með þeirra aðstoð. Við höfum lagt okkur fram við að mæta kröfum heimamanna eftir bestu getu,“ segir Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastjóri Nova upplifunar í tilkynningunni.

Þar segir um fyrirtækið: „Nova var stofnað árið 2006 og er nú orðið eitt af stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækjum landsins. Fyrirtækið á og rekur sína eigin virku innviði vítt og breitt um landið. Í Nova liðinu eru um 150 starfsmenn á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Selfossi. Nova hefur frá upphafi verið í farabroddi í innleiðingu nýjustu tækni og hefur fjárfest markvisst í uppbyggingu virkra innviða í sinni eigu sem mun tryggja Nova áframhaldandi forystu á fjarskiptamarkaði. Farsíma- og netkerfi Nova nær til 98% landsmanna.“