Fara í efni
Fréttir

Norðurslóðasetur verði stofnað í Reykjavík

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Arngrímur B. Jóhannsson, við opnun Norðurslóðaseturs Arngríms á Akureyri 2017. Arngrímur hefur lokað setrinu timabundið og nú hyggst ríkisstjórnin kom upp Norðurslóðasetri í höfuðborginni. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.

Ríkisstjórnin ákvað í morgun að skipa nefnd um undirbúning að stofnun og byggingu Norðurslóðaseturs í Reykjavík sem yrði kennt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrum forseta Íslands. Áformin eru í samræmi við tillögur Grænlandsnefndar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra en þar er lagt til að Norðurslóðasetur verði framtíðarheimili Hringborðs norðurslóða – Arctic Circle. En þær gera jafnframt ráð fyrir að náið samstarf verði á milli Norðurslóðasetursins, stjórnvalda, Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík og Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri.

Ólafur Ragnar Grímsson var hvatamaður að stofnun Hringborðs norðurslóða og hefur verið forystumaður þess frá stofnun árið 2013. Hringborð norðurslóða hefur þróast í að verða helsta aflstöð hugmynda um málefni norðurslóða en árleg þing þess eru orðin stærsta stefnumót heimsins um málefni svæðisins, segir í frétt á vef stjórnarráðsins.

Í Norðurslóðasetri yrði aðstaða fyrir erlenda vísindamenn en jafnframt er gert ráð fyrir að setrið hýsi safn um norðurslóðir. Gert er ráð fyrir að setrið nýti sér liðsinni erlendra stofnana, sjóða og samtaka sem tengjast Hringborði norðurslóða til að styrkja fjárhagslegan grundvöll framkvæmda og reksturs.

Í nefndinni munu eiga sæti fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum í Reykjavík og Hringborði norðurslóða. Nefndin á að skila ríkisstjórninni tillögum fyrir 1. apríl næstkomandi.