Fara í efni
Fréttir

Norðurorka úthlutar sjö milljónum í styrki

Ljósmynd: Auðunn Níelsson

Norðurorka úthlutaði á fimmtudaginn styrkjum til samfélagsverkefna, alls sjö milljónum króna, við athöfn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. 

„Í nóvember 2021 auglýsti Norðurorka hf. eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrir árið 2022 og rann umsóknarfrestur út 19. nóvember. Fram kom að veittir væru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála. Markmið með styrkjum Norðurorku hf. er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi,“ segir í tilkynningu frá Norðurorku.

„Alls bárust 96 umsóknir. Flestar umsóknir bárust frá aðilum á starfssvæði Norðurorku sem nær frá Fjallabyggð til Þingeyjarsveitar en einnig komu nokkrar umsóknir annarsstaðar frá. Verkefnin voru fjölbreytt og greinilega mikil gróska í samfélaginu á fjölmörgum sviðum en að þessu sinni hlutu 39 verkefni styrk og nam heildarfjárhæð styrkja sjö milljónum króna.“

Á myndinni eru styrkþegar eða fulltrúar þeirra, ásamt Helga Jóhannessyni forstjóra Norðurorku, að lokinni úthlutun. Smellið hér til að sjá lista yfir þau verkefni eða þá aðila sem hlutu samfélagsstyrk Norðurorku að þessu sinni.