Fara í efni
Fréttir

Norðlenska matborðið fær jafnlaunavottun

Stefanía G. Kristinsdóttir frá Vottun hf., til vinstri, og Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri Norðlenska.

Norðlenska matborðið ehf. hlaut á dögunum jafnlaunavottun frá Vottun hf. Megintilgangur slíkrar vottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnustöðum, að því er segir í tilkynningui. „Með þessu á að tryggja jafnan rétt, jöfn laun og sömu réttindi og kjör fyrir sömu eða jafn verðmæt störf óháð kyni.“

Jafnlaunavottunin er sögð staðfesting þess að jafnlaunakerfi fyrirtækisins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012.

„Með jafnlaunavottuninni hefur Norðlenska matborðið ehf. öðlast heimild Jafnréttisstofu að nota jafnlaunamerkið til næstu þriggja ára. Jafnlaunamerkið er skráð vörumerki, og er því ætlað að vera gæðastimpill og hluti af ímynd og orðspori fyrirtækja og stofnana. Merkið staðfestir að komið hafi verið upp ferli sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum feli ekki í sér kynbundna mismunun,“ segir í tilkynningunni.