Fara í efni
Fréttir

Nokkrir hvalir á Pollinum í morgun

Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Nokkrir hvalir hafa verið á Pollinum í morgun og vakið mikla athygli heimamanna og gesta þeirra. Hvalaskoðunarbátar þurftu sannarlega ekki að fara langt og farþegar á skemmtiferðaskipinu Celebrity Summit höfðu gott útsýni. Hvalirnir sýndu reyndar engar listir að þessu sinni.

Nokkrar andanefjur héldu til á Pollinum í töluverðan tíma fyrir nokkrum árum og við fyrstu sýn gæti verið um sömu tegund að ræða að þessu sinni.