Fara í efni
Fréttir

Níu teymi komin áfram í Snjallræði 2026

Fulltrúar frá teymunum níu sem komin eru áfram í Snjallræði.

Níu teymi hafa verið valin til þátttöku í Snjallræði háskólahraðlinum 2026 eftir yfirferð á fjölda umsókna og viðtöl við umsækjendur. Verkefnin sem komust áfram eru af ýmsum toga, meðal annars lausnir á sviði umhverfisvænna umbúða, staðbundinnar matvælaframleiðslu, íslenskunáms, fatahönnunar, þróunarsamvinnu og gervigreindar.

FreshPak vinnur að hringrásarvænum umbúðum fyrir kældar ferskvörur, en Rót er stafrænn vettvangur sem tengir íslenska fatahönnuði við neytendur. Matstækið er ætlað að meta og sýna raunverulegt eignarhald í þróunarsamvinnu og AllergyID er stafræn lausn til að halda utan um upplýsingar um fæðuofnæmi.

Iðunnar Rækt leggur áherslu á staðbundna ræktun örgrænmetis og aukið fæðuöryggi, en Orðavísir er íslenskunámsforrit og orðabók sem styður meðal annars við nám í kyni og beygingu nafnorða.

LABÉRA hannar rannsóknarsloppa sérstaklega með líkamsbyggingu kvenna í huga og OptiDesign þróar gervigreindarlausn fyrir verkfræðinga og arkitekta til að fínstilla BIM-hönnun með tilliti til meðal annars kolefnisspors, kostnaðar og orkunotkunar. Stacco er hljóðfæri sem ætlað er að efla hagnýtt og gagnrýnið gervigreindarlæsi með tónsköpun.

Hraðallinn hófst 11. september  með áherslu á fyrsta hluta ferlisins, Skilning. Síðan verða verkefnin unnin áfram í gegnum haustið með hópavinnu og mentorafundum. Þátttakendur taka meðal annars þátt í Hönnunarþingi á Húsavík 25.-26. september og halda áfram með næstu hluta ferlisins, Sýn og Framkvæmd, í október og nóvember.

Lokaviðburður Snjallræðis verður 10. desember þar sem teymin kynna verkefni sín og árangur vetrarins.