Fara í efni
Fréttir

Nikótínpúðar og fleira rusl á skólalóðum

Klappir, nýi leikskólinn við Glerárskóla. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

„Tyggjóklessur, grímur, nikótínpúðar, sígarettustubbar og annað rusl á ekki að sjást á götum, stígum eða lóðum í bæjarlandinu,“ segir á vef Akureyrarbæjar og næsta víst er að yfirgnæfandi meirihluti bæjarbúa er því sammála. Því miður virðast þó ekki allir á sömu skoðun.  

Á vefnum er nefnilega, að gefnu tilefni, vakin athygli á mikilvægi þess að henda ekki rusli á víðavangi, heldur koma því frekar í réttan farveg.

„Tilefni þessarar brýningar er ábending frá starfsfólki leikskóla sem fer yfir skólalóðir á hverjum morgni og fjarlægir sjáanlegt rusl. Að sögn þess hefur talsvert borið á því undanfarið að nikótínpúðar liggi á víð og dreif um lóðirnar. Hvort sem púðarnir hafa vísvitandi verið skildir eftir á skólalóðunum eða fokið þangað annars staðar frá þá er þetta hinn mesti sóðaskapur og getur verið beinlínis hættulegt þegar um ung börn er að ræða,“ segir á vefnum og þar eru bæjarbúar hvattir til dáða: „Hjálpumst að við að halda umhverfi okkar hreinu og pössum sérstaklega upp á leiksvæði barna.“