Fréttir
Framkvæmdir hafnar við náðhúsin
15.07.2026 kl. 10:00
Svona mun svæðið undir kirkjutröppunum líta út þegar framkvæmdum líkur.
Gömlu náðhúsin undir kirkjutröppunum við Akureyrarkirkju eru heldur betur að taka stakkaskiptum þessa dagana. Í tilkynningu á Facebook segir fyrirtækið Heimar hf. að framkvæmdir hafi hafist um miðjan júní og verklok séu áætluð á seinni hluta árs.
Í maí 2022 keyptu Heimar gömlu náðhúsin undir kirkjutröppunum við Akureyrarkirkju en hluti af samkomulaginu var að ráðist yrði í endurbætur á kirkjutröppunum þar fyrir ofan. Endurbótum á tröppunum lauk í desember 2024 en þá voru þær endursteyptar, búnar nýju snjóbræðslukerfi, nýrri lýsingu og klæddar nýjum granítsteini.
Varðandi náðhúsin þá stendur til að á næstu mánuðum rísi þar nýtt verslunar- og þjónusturými með aðlaðandi útisvæði. Hönnun verkefnisins er unnin í samstarfi við AVH en í tilkynningunni á Facebook segir að frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að viðbyggingin falli vel að umhverfinu og dragi ekki úr ásýnd kirkjutrappnanna.

Svona er staðan í dag. Búið að girða af framkvæmdasvæðið og greinilega eitthvað verið að spekúlera innan girðingar. Myndir: Haraldur Ingólfsson.
