Fara í efni
Fréttir

Ákall til Akureyringa vegna Punktsins

Rósenborg, þar sem Barnaskóli Akureyrar til húsa á sínum tíma, er það stóra lengst til vinstri. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Handverksmiðstöðin Punkturinn hefur annað slagið verið bitbein Akureyringa; vinsæll staður sem er í Rósenborg, húsinu þar sem Barnaskóli Akureyrar var til áratuga. Bæjaryfirvöld hafa stefnt að því að flytja starfsemina annað, því var frestað tímabundið í fyrra en nú á að láta til skarar skríða á ný. Því mótmæla nokkrir hollvinir.

„Punkturinn hefur verið starfræktur á Akureyri síðan 1994 þegar hann var stofnaður sem alhliða handverkstæði fyrir atvinnulaust fólk. Hlutverk hans hefur þróast og umsvif þjónustunnar aukist til muna á þessum tæplega 30 árum. Þá sérstaklega hefur starfsemin blómstrað síðastliðin 15 ár sem Punkturinn hefur verið starfræktur í Rósenborg. Í dag er Punkturinn opinn öllum sem þangað vilja koma. Hann gegnir enn mikilvægu hlutverki fyrir atvinnulausa en einnig fyrir fólk í starfsendurhæfingu á vegum Virk og fyrir notendur Grófarinnar, sem er gjaldfrjálst úrræði fyrir fólk sem glímir við geðræn vandamál. Þar að auki hefur verið öflugt barna og unglingastarf í Punktinum. Því hefur Punkturinn mjög mikilvægan sess í að halda úti fjölbreyttu og öðruvísi tómstundastarfi á Akureyri og gefur fólki færi á að fá útrás fyrir sköpunargleðina,“ segir í opnu bréfi hollvinanna sem birtist á Vísi í gær.

Þar segir ennfremur:

„Undanfarin tvö ár hafa kjörnir fulltrúar á Akureyri skapað mikla óvissu um framtíð Punktsins. Í umræðunni hefur verið að flytja starfsemina í húsnæði sem getur ekki hýst nema lítið brot af því starfi sem nú er haldið úti í Rósenborg. Ákvarðanir hafa verið teknar án þess að samráð sé haft við notendur og starfsfólk Punktsins. Lítil greiningarvinna hefur verið unnin og undirbúningur fyrir ákvarðanatöku ekki unninn með faglegum hætti. Umræðan hefur búið til mikið óöryggi, vonleysi og óvissu meðal notenda.

Í seinustu viku kom enn á ný tilkynning um að loka ætti Punktinum. Þessi ákvörðun var enn og aftur hvorki tekin í samráði við notendur né starfsfólk þrátt fyrir ítrekuð loforð um bætt vinnubrögð frá kjörnum fulltrúum.

Á þessum óvissu tímum sem hafa skapast í samfélaginu síðast liðið ár hefur aldrei verið meiri þörf fyrir starf eins og það sem rekið er í Punktinum. Þetta starf spornar gegn félagslegri einangrun viðkvæmra hópa samfélagsins, þar á meðal fólks sem hefur misst sitt lífsviðurværi og fólks sem glímir við félagsleg vandamál og veikindi að einhverju tagi. Auk þess að vera staður sem er opinn öllum óháð stétt, stöðu og aldri. Það er ósk okkar og von að Punkturinn fái fastan sess í því íþrótta- og tómstundastarfi sem er í boði á Akureyri, að frekari uppbygging og efling verði á starfi Punktsins í Rósenborg til að sporna gegn eftirköstum faraldursins á heilsu og líðan íbúa Akureyrar, auk þess að gegna því hlutverki sem hann hefur haft í áratugi. Til að starfið hafi grundvöll til að vaxa þarf að tryggja öruggi í húsnæðismálum, að húsnæðið henti því starfi sem þar fer fram og eins að sýna notendum og starfsmönnum sanngirni og virðingu.

Því sendum við ákall til kjörinna fulltrúa, íbúa Akureyrar, og allra þeirra sem hafa nýtt sér Punktinn eða eiga aðstandendur sem hafa nýtt sér Punktinn að láta í sér heyra. Starfið snertir okkur öll. Hópurinn sem kemur saman og starfar í Punktinum hefur ekki sameiginlegan vettvang og því mikilvægt að íbúar standi vörð um þessa mikilvægu þjónustu í þágu okkar allra.“

Undir þetta opna bréf rita Guðrún Margrét Jónsdóttir, Barbara Hjartardóttir, Halldóra Kristjánsdóttir Larsen, Oddný Kristjánsdóttir og Þuríður Helga Kristjánsdóttir.