Fara í efni
Fréttir

Mótmæla harðlega að sett verði á komugjald

Björn Snæbjörnsson og Sigurður Á. Sigurðsson, formaður og varaformaður Landssambands eldri borgara.

Landssamband eldri borgara mótmælir því harðlega að sett verði á komugjald í sjúkraþjálfun, eins og heilbrigðisráðherra hefur boðað frá 1. september næstkomandi. Þetta kemur fram í ályktun sem formaður og varaformaður LEB hafa sent frá sér.

Ályktunin er svohljóðandi í heild:

Landssamband eldri borgara mótmælir því harðlega að sett verði á komugjald í sjúkraþjálfun, eins og heilbrigðisráðherra hefur boðað frá 1. september næstkomandi.

Gjaldið, að upphæð 1.000 kr. gerir stórum hópi eldri borgara erfiðara að sækja þessa nauðsynlegu þjónustu. Sumir í þessum hópi þurfa á þjónustunni að halda í fleiri en eitt skipti mánaðarlega. Fjölmargir munu ekki ráða við þessa gjaldtöku. Enn eru um 20% eldra fólks á Íslandi með tekjur undir lágmarks taxta á almennum vinnumarkaði.

Við þurfum á því að halda þegar fjöldi eldra fólks í samfélaginu fer hækkandi að horfa til framtíðar og í lausnum sem þjóna samfélaginu til langs tíma. Það virðist vera stefna núverandi ríkisstjórnar að sverfa að eldra fólki í stað þess að leitast við að byggja upp kerfi sem styrkir eldra fólk til sjálfstæðis og betri heilsu.

Landssamband eldri borgara skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða þá ákvörðun að setja á ofangreint komugjald.

Virðingarfyllst,

Björn Snæbjörnsson, formaður LEB

Sigurður Á. Sigurðsson, varaformaður LEB