Möl og sandur flytur að Sjafnarnesi
Möl og sandur hóf á laugardaginn starfsemi á nýju athafnasvæði fyrirtækisins við Sjafnarnes, í nyrsta hluta Akureyrar. Þá var gangsett ný steypustöð, mun afkastameiri en sú gamla. Fyrstu hrærur úr stöðinni voru notaðar til að steypa aðstöðu fyrir efnislager fyrirtækisins á svæðinu.

Hjörtur Narfason framkvæmdastjóri Malar og sands á nýju athafnasvæði fyrirtækisins á laugardaginn þegar nýja steypustöðin var notuð í fyrsta skipti. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Steypustöðin við Súluveg hefur verið starfrækt þar í hálfan sjötta áratug. Hún var flutt til landsins árið 1967 í því skyni að steypa fyrsta áfanga álversins í Straumsvík í Hafnarfirði en Möl og sandur keypti stöðina að því loknu og flutti til Akureyrar þar sem hún gangsett 1971.
Samkvæmt samningi Malar og sands og Akureyrarbæjar skal fyrirtækið skila lóðinni við Súluveg í upprunalegu ástandi í síðasta lagi eftir fimm ár. Hugmyndir hafa verið uppi um að íbúðabyggð á svæðinu, meðfram Glerá.

Fyrsta steypan úr nýju stöðinni var notuð til að útbúa svæði fyrir efnislager fyrirtækisins við Sjafnarnes. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ánægðir með nýju steypustöðina. Frá vinstri: Hjalti Jónsson, Hjörtur Narfason og Garðar Már Sverrisson. Mynd: Axel Þórhallsson