Fréttir
„Minningardagurinn hefur mikla þýðingu“
15.11.2026 kl. 22:00
Minningarstund, á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa, var haldin hjá Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri. Mynd: Þorgeir Baldursson
Veigamiklar breytingar á umferðarlögum verða kynntar í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum. Þeim er ætlað að efla umferðaröryggi og stemma stigu við hraðakstri, m.a. með því að styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við alvarlegum umferðarlagabrotum.
Þetta kom fram í máli Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra í dag, á alþjóðlegum minningardegi um þá sem látið hafa lífið í umferðarslysum. „Við verðum að bregðast við og vinna bug á áhættuhegðun í umferðinni með samstilltu átaki okkar allra – samfélagsins alls,“ sagði ráðherra á minningarstund við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi.
Minningarstund var haldin víða um land, í höfuðstað Norðurlands hjá Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, að Hjalteyrargötu 12.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, lent við bækistöðvar Súlna áður en dagskráin hófst með því að Heimir Ingimarsson flutti lag KK, When I Think of Angels. Gunnar Már Gunnarsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar flutti síðan ávarp og Emma Agneta Björgvinsdóttir sagði reynslusögu sína. Þvínæst flutti séra Sindri Geir Óskarsson hugvekju og stýrði einnar mínútu þögn áður en Broddi Pálmi Ottesen Pétursson lögreglumaður flutti ávarp. Að því loknu var boðið upp á veitingar í húsakynnum Súlna.
Þorgeir Baldursson var á staðnum með myndavélina.
Enn hræðileg banaslys
„Minningardagurinn hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið. Við minnumst þeirra sem látist hafa í umferðarslysum og færum þakkir til viðbragðsaðila. Við horfum um öxl og metum hvað hefur áunnist og hvað gera megi betur“, sagði Eyjólfur Ármannsson í dag. „Þótt banaslysum hafi fækkað hlutfallslega yfir lengri tímabil verðum við þó enn vitni að hræðilegum banaslysum. Við höfum þurft að horfast í augu við að mörg ungmenni hafa látið lífið í umferðarslysum vegna hraðaksturs. Við getum ekki setið hjá við slíkar aðstæður – og verðum að grípa til aðgerða. Sett verður af stað sérstakt fræðslu- og kynningarátak um hraðakstur og þá mun ég kynna veigamiklar breytingar á umferðarlögum í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum. Þeim er ætlað að efla umferðaröryggi enn frekar og stemma stigu við hraðakstri, m.a. með því að styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við alvarlegum umferðarlagabrotum. Við verðum að bregðast við og vinna bug á áhættuhegðun í umferðinni með samstilltu átaki okkar allra – samfélagsins alls.“