Fara í efni
Fréttir

Milljónatjón: heimagerð sprengja sprengd í Múlagöngum

Milljóna tjón varð eftir að heimagerð sprengja var sprengd í Ólafsfjarðargöngunum á dögunum, samkvæmt heimildum Akureyri.net. Fjórir voru handteknir, fólk á fertugs- og fimmtugsaldri, einn á Ólafsfirði, annar á Akureyri og tveir á Suðurnesjum.

Tugir lögreglumanna komu að rannsókn málsins, þar á meðal sérsveitin. Sprengjuleitarhundur var með í för þegar farið var í húsleitir á Ólafsfirði á miðvikudaginn, skv. heimildum. Sprengjan var sett við hlið gáms í útskoti en í gámnum er tölvubúnaður sem stýrir ljósum í göngunum.

VIÐBÓT - Lögreglan sendi frá sér þessa tilkynningu rétt í þessu:

Mikill viðbúnaður var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í vikunni í kjölfar þess að heimagerð sprengja var sprengd í Ólafsfjarðargöngum. Tjón af völdum sprengingarinnar er talið nema milljónum króna og orsakaði meðal annars ljósleysi í Ólafsfjarðargöngum. Málið er litið alvarlegum augum. Lögreglan naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og sprengjusérfræðinga hennar við framkvæmdir á húsleitum á Ólafsfirði á miðvikudag. Fjórir voru handteknir vegna málsins bæði í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og lögreglustjórans á Suðurnesjum.
 
Aðgerðirnar voru hluti af rannsókn lögreglunnar á athæfi sem hefur í för með sér almannahættu. Málsatvik liggja að mestu fyrir eftir skýrslutökur hjá lögreglunni á Akureyri og á Suðurnesjum en frekari rannsókn stendur yfir. Fólkinu sem allt er á fertugs- og fimmtugsaldri hefur verið sleppt úr haldi lögreglu.