Mikil hálka á götum og gangstéttum
Mikil hálka er nú á Akureyri, bæði á götum og gangstéttum. Aðstæður eru víða erfiðar og geta skapað hættu fyrir bæði gangandi vegfarendur og ökumenn. Varað er við aðstæðum á vef Akureyrarbæjar.
Starfsfólk bæjarins vinnur að því að hálkuverja og brjóta upp klaka þar sem þörf er á til að bæta aðstæður sem fyrst.
„Íbúar og aðrir vegfarendur eru beðnir um að fara varlega á meðan aðstæður eru með þessum hætti. Sérstaklega er bent á að aka með aðgát, halda góðri fjarlægð milli bifreiða og sýna aðgát á gangstéttum þar sem klaki getur leynst,“ segir á vef bæjarins.
Til að auðvelda íbúum að bregðast við hefur verið komið fyrir haugum af grófum sandi á völdum stöðum í bænum þar sem fólk getur sótt sér efni til hálkuvarna. Sand má nálgast á eftirfarandi stöðum, að því er segir á vef Akureyrarbæjar:
- Grenndarstöð norðan Ráðhússins
- Grenndarstöð við Bónus í Naustahverfi
- Grenndarstöð við Bónus við Langholt
- Grenndarstöð við Hagkaup
- Grenndarstöð við Merkigil
- Grenndarstöð við Hrísalund
- Grenndarstöð við Byggðaveg