Fara í efni
Fréttir

Miðflokkurinn opnar líka kosningaskrifstofu

Miðflokkurinn hefur komið sér fyrir við Óseyri 2. Kosningaskrifstofan opnar formlega í dag, sunnudag kl. 14.

Miðflokkurinn á Akureyri hefur ákveðið að opna kosningaskrifstofu fyrir komandi kosningar. Kosningaskrifstofan verður að Óseyri 2.

Akureyri.net tók nýlega saman lista yfir kosningaskrifstofur þeirra átta flokka sem eru í framboði fyrir sveitastjórnarkosningarnar. Þar kom fram að Akureyrarlistinn, Viðreisn og Miðflokkurinn yrðu ekki með kosningaskrifstofur. Miðflokkurinn hefur hins vegar ákveðið að opna kosningamiðstöð í dag, sunnudag kl. 14. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður, mætir á opnunina og verður gestum boðið upp á ís úr vél og vöfflur. Fastur opnunartími fram að kosningum verður virka daga milli kl. 16 og 18 og um helgar milli kl. 14 og 16.