Metfjöldi úrkomudaga á Akureyri í júní
Nýliðinn júnímánuður var hlýrri en að jafnaði á Akureyri, en jafnframt óvenju votviðrasamur. Meðalhiti mánaðarins mældist 10,1 stig, sem er 0,5 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en nálægt meðallagi undanfarins áratugar, samkvæmt samantekt Veðurstofu Íslands.
Úrkoma á Akureyri í júní mældist alls 38,7 millimetrar, eða 87 prósent umfram meðallag miðað við tímabilið 1991 til 2020 en 26 prósent umfram meðallag síðasta áratugar. Dagar þar sem úrkoma mældist einn millimetri eða meiri voru 14 talsins, tíu fleiri en að jafnaði. Aldrei hafa mælst fleiri slíkir dagar á Akureyri í júní frá upphafi mælinga; fyrra met var 13 dagar, árin 1972 og 1984.
Sólskinsstundir voru 171 á Akureyri í júní, tæplega 19 stundum undir meðallagi. Til samanburðar var meðalhiti í Reykjavík 10,6 stig og þar mældust 58,3 millimetrar úrkomu. Sólskinsstundir í höfuðborginni voru 191, eða nærri meðallagi.
Fyrstu sex mánuði ársins hefur meðalhiti á Akureyri mælst 2,8 stig, sem er um meðallag miðað við árabilið 1991 til 2020. Heildarúrkoma frá áramótum er hins vegar fimm prósent yfir meðallagi.