Fara í efni
Fréttir

Meiri klór í sundlauginni á sólardögum

Margir fagna sól og blíðu yfir sumarmánuðina og fjölmenna þá í sundlaugar landsins. Færri gera sér þó grein fyrir því að sólin hefur bein áhrif á rekstur sundlauga og leiðir meðal annars til aukinnar klórnotkunar.

Þetta kom fram í nýlegu viðtali við Gísla Rúnar Gylfason, forstöðumann Sundlauga Akureyrar, í Morgunútvarpi Rásar 2. Að sögn Gísla eru tvær meginástæður fyrir því að klórnotkun eykst yfir sumarið. Annars vegar fjölgar gestum verulega þegar hlýnar í veðri og ferðamönnum fjölgar. Hins vegar hefur sólarljósið sjálft áhrif á klórinn í laugarvatninu.

Sólin brýtur klórinn niður
„Það er tvennt sem eykur klórnotkun okkar. Það eru fleiri gestir, það kallar bara á meiri klórnotkun, það er bara eðlilegt, og sólin hefur líka áhrif. Það er svo magnað, þegar sólin fer að skína þá virðist hún brjóta einhvern veginn niður klórinn. Því meiri sól, því meiri klórnotkun,“ sagði Gísli í viðtalinu. Munurinn getur verið verulegur, eða allt að tvöfalt meiri í júlí en í desember.

Meira hreinlæti, minni klór
Yfir sumartímann getur fjöldi gesta einnig aukist verulega. Gísli sagði að á annasömum dögum gætu allt að tvö þúsund manns komið í Sundlaug Akureyrar á dag. Sá fjöldi kallar óhjákvæmilega á meira eftirlit með vatnsgæðum og aukna notkun hreinsiefna. Þrátt fyrir að klórinn gegni lykilhlutverki í að halda vatninu hreinu leggur Gísli áherslu á að góðar hreinlætisvenjur sundlaugargesta skipti miklu máli. Því betur sem fólk þvær sér áður en það fer í laugina, þeim mun minni þörf sé fyrir aukna klórnotkun.