Fara í efni
Fréttir

Matthíasi nær – 100 ára ártíð á morgun

Vilhjálmur Bergmann Bragason, sem séra Matthías, við upptökur á Sigurhæðum í gærdag.

Séra Matthías Jochumsson lést 18. nóvember árið 1920 – á morgun er því 100 ára ártíð þessa mikla andans manns. Af því tilefni hefur Flóra menningarhús, með stuðningi Menningarsjóðs Akureyrar, látið gera myndskeið „þar sem Vilhjálmur B. Bragason fer á kostum í umfjöllun um Matthías sem leikritaskáld og þýðanda,“ eins og Kristín Þóra Kjartansdóttir hjá Flóru orðar það.

„Matthías er nefnilega ekki bara þjóðskáldið okkar, höfundur þjóðsöngsins auk þess að hafa verið prestur Akureyringa, heldur var hann svo margt fleira. Hann var stórbrotinn persónuleiki, heimsborgari, frjálslyndur, umdeildur og mikilvægur í þjóðmálaumræðu Íslendinga áratugina í kringum 1900. En Matthías var einnig áhrifaríkur í nærsamfélaginu og mótandi persónuleiki í samfélagsþróun Akureyrar á þeim tíma og fólksins í kringum hann,“ segir Kristín.

Myndskeiðið var tekið upp í gær, á Degi íslenskrar tungu, í Sigurhæðum á Akureyri, húsi Matthíasar og Guðrúnar Runólfsdóttur, eiginkonu hans. Myndskeiðinu verður miðlað á Youtube, Facebook og Instagram frá og með morgundeginum, miðvikudeginum 18. nóvember.

Í undirbúningi er annað myndskeið í svipuðum dúr og mun það birtast í byrjun desembermánaðar. Þórunn Jarla Valdimarsdóttir, sem ritaði ævisögu séra Matthíasar – Upp á Sigurhæðir – fyrir nokkrum árum „fjallar þar á sinn einstaka hátt um Matthías sem jafnræðissinna og talsmann kvenfrelsis. Með þessum myndskeiðum og samstarfi við frábært samtímalistafólk okkar vill Flóra menningarhús stuðla að því að efla ritlist norðan heiða og um land allt, en markmiðið er einnig að auka samtal og þekkingu um líf og verk norðlensks ritlistafólks,“ segir Kristín Þóra.