Fara í efni
Fréttir

Mark Zuckerberg sagður vera á Akureyri

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook og forstjóri Meta, móðurfyrirtækis Facebook og Instagram, er sagður staddur á Akureyri.

Fréttavefur Morgunblaðsins, mbl.is, greinir frá því að mikill viðbúnur hafi verið á flugvellinum sakir þess að einkaflugvél Zuckerbergs sé væntanleg. Heimildir miðilsins herma að hann sé á leið að Deplum á Tröllaskaga.

Ef rétt reynist býður Akureyri.net Zuckerberg hjartanlega velkominn norður í sólina!

Frétt mbl.is

Einkaþota, sem Mark Zuckerberg ku hafa komið með norður í land, á Akureyrarflugvelli í dag. Ljósmynd: Jón Óskar Ísleifsson