Fréttir
Maðurinn er látinn
17.07.2026 kl. 10:38
Maðurinn sem fluttur var með þyrlu af Glerárdal á Sjúkrahúsið á Akureyri í gær er látinn. Hann lést vegna veikinda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Tilkynningin er svohljóðandi:
Klukkan 18:32 barst tilkynning vegna slyss á Glerárdal við Akureyri þar sem hjólreiðamaður hafði slasast. Björgunarsveitir voru kallaðar til ásamt öðrum viðbragðsaðilum. Vegna aðstæðna var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar á vettvang til að aðstoða við flutning hins slasaða undir læknishendur, hinn slasaði var fluttur á SAk og var kominn þangað um klukkan 20:20 þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Í ljós kom að um veikindi var að ræða og er málið til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Ekki verða gefnar frekari upplýsingar um málið