Fara í efni
Fréttir

Maður slasaðist í snjóflóði í Hlíðarfjalli

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Skíðamaður lenti í snjóflóði ofan við skíðasvæðið í Hlíðarfjalli laust eftir klukkan 13.00 í dag. Hann slasaðist en grófst þó ekki í flóðinu og þrír aðrir sem voru með í för komu honum til aðstoðar.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir: „Með aðstoð starfsmanna í Hlíðarfjalli voru sjúkraflutingamenn fluttir á slysavettvang og bjuggu þeir um hinn slasaða til flutnings sem var síðan fluttur á SAk til aðhlynningar. Ekki er vitað um ástand hins slasaða að svo stöddu.“