Fara í efni
Fréttir

Lykilatriði að Akureyri sé samkeppnishæf

Talið er að um 10.000 manns hafi komið til Akureyrar vegna N1 mótsins í síðustu viku. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

„Fjárfesting í heilsu og vellíðan er fjárfesting í heilbrigði framtíðarinnar,“ segja Ingvar Már Gíslason, formaður Knattspyrnufélags Akureyrar, og Eiríkur S. Jóhannsson, varaformaður, m.a. í grein sem birtist á heimasíðu KA í morgun. Þar fjalla þeir m.a. um aðstöðu félagsins sem þeir segja ekki boðlega, og um hve árlegt N1 mót félagsins í knattspyrnu sé félagslega og efnahagslega mikilvægt.

„Það er í okkar huga afar mikilvægt að byggja undir íþróttastarfsemi og gera íþróttafélögunum mögulegt að þróast. Samhliða verður að eiga sér stað fjárfesting í mannvirkjum og öðrum innviðum, það er algjört lykilatriði til að við séum samkeppnishæf við önnur sveitarfélög þegar kemur að aðstöðu fyrir iðkendur okkar og búsetuval einstaklinga og ekki síður að við getum staðist samkeppnina þegar kemur að ferðatengdri íþróttastarfsemi,“ segja KA-mennirnir.

KA ríkt af sjálfboðaliðum

„Gleði, kapp og ánægja skein úr hverju andliti sem er okkur KA fólki mikils virði enda leggja fjölmargir sjálfboðaliðar félagsins gríðarlega vinnu á sig til þess að mótið geti farið fram. Fyrir þessa vinnu erum við félagsmönnum okkar þakklátir því það er í raun ekkert sjálfgefið í dag að fólk fórni tíma sínum í félagsstarf sem þetta. KA er sem betur fer ríkt af virkum sjálboðaliðum og stuðningsmönnum,“ segir þeir um N1 mótið, sem stóð yfir í fjóra daga í síðustu viku.

Mörg hundruð milljónir

„Það er óumdeilt að kraftur félagsins er með þessum hætti að skapa félagsleg sem og efnahagsleg verðmæti sem samfélagið okkar á Akureyri nýtur góðs af. Liðin N1 móts helgi er langstærsta ferðamannahelgi ársins og hefur tilheyrandi áhrif á mannlíf jafnt sem viðskiptalíf bæjarins. Eftir samtöl okkar við rekstrar- og þjónustuaðila, er það mat okkar að áhrifin á viðskiptalíf Akureyrar hlaupi á mörg hundruðum milljóna þar sem verslun og þjónusta einkaaðila sem og opinberra aðila nýtur góðs af ásamt íþróttahreyfingunni sjálfri,“ segja Ingvar og Eiríkur.

Þrekverki

Þeir segja KA fólk stolt af því að vera virkir þátttakendur í samfélaginu á Akureyri. „Á þetta bæði við um íþróttastarfið okkar sem og þau jákvæðu áhrif sem starf okkar hefur á tekjuöflun rekstraraðila í bænum. Vegna þessa leggjum við mikla áherslu á að okkur verði gert kleift að sinna því öfluga barna og unglingastarfi sem svo sterk krafa er um í samfélaginu að við sinnum. Óhætt er að segja að KA hafi undanfarin ár unnið þrekvirki í sínu uppbyggingarstarfi. Alger sprenging hefur orðið í iðkenda fjölda hjá félaginu. Við höfum tekið fagnandi hverjum og einum einstaklingi sem velur að iðka sína íþrótt hjá KA og leggjum við okkur fram um að sinna honum sem best. Á sama hátt eru iðkendur í afreksstarfi félagsins að keppa meðal þeirra fremstu á landinu í öllum þeim íþróttagreinum sem við leggjum stund á og eru bænum sannarlega mikilvæg auglýsing.“

Aðstaðan ekki boðleg

Þeir segja síðan: „Það hefur ekki farið framhjá nokkrum manni að aðstaðan sem við KA fólk höfum boðið gestum N1 mótsins uppá undanfarin ár er ekki boðleg og í engu samræmi við umfang starfsemi félagsins. Hvorki KA né bæjarfélagið stenst samanburð við þau íþróttafélög sem við viljum bera okkur saman við þegar kemur að vallaraðstæðum. Á 93ja ára afmæli KA í janúar s.l., skrifuðum við undir viljayfirlýsingu við Akureyrarbæ um að gera miklar endurbætur á aðstöðu okkar. Höfum við miklar væntingar um að nú verði tekið höndum saman um að klára löngu tímabæra uppbyggingu á félagssvæði okkar við Dalsbraut. Á þessu er mikill skilningur meðal bæjarbúa sem og forsvarsmanna Akureyrarbæjar.“

Smellið hér til að lesa greinina í heild.