Fréttir
Lögreglumenn segja frá í nýrri bók Júlíusar
06.04.2026 kl. 10:15
Út er komin bókin Í framlínu – lögreglumenn segja frá. Höfundur er Júlíus Ó. Einarsson þjóðfræðingur, sem jafnframt er fyrrverandi lögreglumaður. Í bókinni lýsa tugir lögreglumanna starfi sínu, einstökum verkefnum og upplifunum á meira en 250 blaðsíðum. „Einnig eru þar hugleiðingar um eðli lögreglustarfins og áhrif þess á þá sem því sinna og þeirra nánustu. Viðmælendur í bókinni eru af báðum kynjum, öllum aldri, flestum starfsstigum og hvarvetna af landinu. Viðlíka innsýn hefur ekki áður verið gefin í lögreglustarfið hérlendis. Um leið er bókin öðrum þræði sögulegt yfirlit löggæslu síðustu fjörutíu ára,“ segir í tilkynningu frá útgefanda.
Að sögn Júlíusar er nokkuð af frásögnum í bókinni frá lögreglumönnum á Norðurlandi. „Yfirleitt er ekki vísað til embættis eða sögustaðar og viðmælendur njóta nafnleyndar. Þó munu kunnugir stundum geta kannast við eitt og annað úr sínu héraði,“ segir Júlíus við akureyri.net.
fer hún þegar komin í helstu bókaverslanir.
Í framlínu er fyrsta bók útgáfunnar Blakks á Selfossi og á hún þegar að vera komin í bókaverslanir skv. tilkynningunni.
- Lesa má stutta útdrætti úr nokkrum frásögnum á vefsíðu útgáfunnar – sjá hér: Lögreglustarfið