Fara í efni
Fréttir

Lögreglan lýsir eftir 14 ára stúlku

UPPFÆRT: Stúlkan er fundin heil á húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar um kl. 1 í nótt.
- - -
 
Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir 14 stúlku. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu embættisins og þar er meðfylgjandi mynd af henni birt. Fyrr í kvöld var greint frá því að umfangsmikil leit lögreglu og björgunarsveita að einstaklingi stæði yfir á Akureyri.
 
Í tilkynningu lögreglunnar segir:
 
Talið er að hún sé klædd í gráa peysu og gallabuxur. Stúlkan er 160 cm á hæð og með skollitað hár. Síðast er vitað um ferðir hennar við Klettaborg, 600 Akureyri um kl 16:30 í dag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir stúlkunnar eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.
 

VIÐBÓT – Stúlkan heitir Clara. Móðir hennar, Yvönne Höller, birti myndina hér að neðan á Facebook síðu sinni og biðlar til allra sem kunna að hafa séð stúlkuna eftir klukkan 16.00 að hafa samband við sig eða lögregluna.