Fara í efni
Fréttir

Lögreglan leitar vitna að líkamsárás

Lögreglan á Norðurlandi eystra óskar eftir upplýsingum frá vitnum að líkamsárás er átti sér stað í kringum miðnætti að kvöldi laugardagsins 19. júní á tjaldsvæði Bílaklúbbs Akureyrar, að því er fram kemur á Facebook síðu lögreglunnar. Þar er tekið fram að nálægt brotavettvangi hafið staðið svört rúta.

„Öll vitneskja um málið er vel þegin og er óskað eftir því að þeir sem eitthvað um málið vita hafi samband sem fyrst í síma 4442800, þar sem upplýsingar verða teknar niður,“ segir á síðu lögreglunnar.