Fara í efni
Fréttir

Lögreglan leitar vitna að árás í miðbænum

Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir vitnum að meintri líkamsárás sem átti sér stað á Akureyri, nánar tiltekið í Hafnarstræti, skammt frá pylsuvagninum um klukkan 00:45 aðfararnótt sunnudags, 17. október.

Maður á sextugsaldri var að ræða við fjóra menn sem endaði með handalögmálum, sá á sextugsaldrinum lá eftir í götunni í kjöfarið en náði síðan að komast á brott. Lögreglan er með upptöku af meintri árás, þar sést meðal annars að eitthvað af fólki varð vitni að þessu atviki og óskum við eftir að ná tali af því.

Lögreglan biður þá sem hafa upplýsingar um meinta líkamsárás að hafa samband við lögregluna í gegnum síma 4442800, netfangið nordurland.eystra@logreglan.is eða senda einkaskilaboð á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.