Fara í efni
Fréttir

Lögreglan leitar enn vitna að líkamsárás

Lögreglan óskaði í morgun eftir að ná sambandi við vitni að líkamsárás sem átti sér stað á Strandgötu við Bifreiðastöð Oddeyrar (BSO) aðfaranótt sunnudagsins 10. október. „Lögreglan óskar einnig eftir að komast í samband við ökumann hvítrar Land Rover Discovery bifreiðar sem sótti aðila í Kaupvangsstræti við veitingastaðinn Rub umrædda nótt, skömmu eftir líkamsárásina.“

Þeir sem hafa upplýsingar sem gætu tengst þessu eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í gegnum síma 4442800, netfangið nordurland.eystra@logreglan.is eða senda einkaskilaboð á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.