Fara í efni
Fréttir

Lögreglan hvetur til varkárni og tillitssemi

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

„Nú eru skólar byrjaðir aftur eftir jólafrí. Við biðjum ökumenn nú sem endranær að gæta vel að börnum og öðrum gangandi vegfarendum – ekki síst núna í skammdeginu.“

Þannig hefst færsla á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra í morgun, ákall til Akureyringa en innihaldið á þó vitaskuld erindi til allra ökumanna.
 

Lögreglan biður ökumenn einnig að huga vel að því hvar þeir leggja bifreiðum sínum. Það gerist of oft að lagt sé í stæði fyrir skólabíla og utan merktra stæða á bifreiðastöðum, þar sem þrengt sé að akstri slíkra bíla. Til dæmis hafi borið á þessu við Sundlaug Akureyrar og Íþróttahöllina. „Þetta þýðir að skólabílarnir komast jafnvel ekki að þeim húsum sem verið er að aka börnunum í og/eða að auka tilfæringar þurfi til við akstur þeirra. Þetta skapar allt aukna hættu. Og nei, það má heldur ekki leggja svona „bara í 2 mínútur“ því fólk sem það gerir veit sjaldnast hvenær von er á skólabíl.“