Fara í efni
Fréttir

Lögreglan auglýsir eftir ökumanni eða vitnum

Lögreglan auglýsti í dag eftir eftir ökumanni eða vitnum vegna atviks sem átti sér stað á Akureyri fimmtudaginn 5. nóvember síðastliðinn. Þá var ekið á stúlku á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi, við Vanabyggð.
 
„Atvikið átti sér stað um kl. 14:00 og er bifreiðin sögð hafa verið hvít að lit. Viðkomandi ökumaður sem og möguleg vitni að óhappi þessu eru beðin um að hafa samband við lögreglu,“ segir á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Þar eru þeir sem hafa upplýsingar um málið, eða urðu vitni af slysinu, beðnir um að hafa samband í síma 444-2800 eða senda tölvupóst á netfangið: nordurland.eystra@logreglan.is