Fara í efni
Fréttir

Lögregla og sjúkralið æfa forgangsakstur

Vegna æfingar aðgerðarsveitar lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sérsveitar ríkislögreglustjóra og slökkviliðs Akureyrar mega vegfarendur búast við ökutækjum lögreglu og sjúkraliðs í forgangsakstri á Akureyri í nokkrar klukkustundir eftir klukkan 14.00 í dag. Það sama var upp á teningnum um tíma í gær.

„Viðbragðsaðilar munu sem áður gæta ítrustu varkárni við forgangsakstur og vonum við að þetta komi ekki að sök í umferðinni ... “ segir í tilkynningu frá lögreglunni. „Við erum afar þakklát fyrir góð viðbrögð ökumanna við forgangsakstri viðbragðsaðila en við höfum orðið vör við að ökumenn víkja mjög vel úr vegi og sýna fyllstu tillitssemi þegar forgangsakstur er viðhafður og það finnst okkur afar þakkarvert.“