Lögmannshlíðarkirkja opnuð á ný – MYNDIR
Messað var í Lögmannshlíðarkirkju í gær og það gamla, fallega guðshús þar með tekið í notkun ný eftir umfangsmikið viðhald og endurbætur sem staðið hafa í rúm tvö ár. „Kirkjan hefur gengið í gegnum mikla yfirhalningu og er nú glæsileg, hlýleg og tilbúin til að þjóna samfélaginu á ný,“ segir á vef Glerárkirkju í dag, en báðir tilheyra kirkjurnar Lögmannshlíðarsókn.
Meðal stærstu framkvæmda var að kirkjan var tjökkuð upp og grunnur hennar styrktur, en hún hafði sigið í norðausturhorni. Gólfin voru skafin og pússuð, kirkjubekkirnir teknir upp, hækkaðir og bólstraðir. Þá var kirkjan máluð að innan og gengið frá í kringum glugga til að koma í veg fyrir leka og trekk.

Séra Hildur Björk Hörpudóttir sóknarprestur í Lögmannshlíðarsókn.
Að framkvæmdunum hefur komið fjöldi fólks og fyrirtækja sem hafa unnið af mikilli alúð og fagmennsku. „Fjölmargir hafa einnig stutt verkefnið fjárhagslega og sýnt með því hversu miklu Lögmannshlíðarkirkja skiptir samfélagið. Þau Snorri Guðvarðsson og Kristjana Agnarsdóttir eiga sérstakar þakkir skildar fyrir að hafa haldið utan um framkvæmdina, fylgt eftir verkþáttum og haft yfirsýn yfir verkefnið allt frá upphafi,“ segir í greininni á vef kirkjunnar.
Við endurbæturnar var einnig ráðist í breytingu á prédikunarstólnum. Þrepin upp að stólnum voru fjarlægð og stóllinn færður lítillega aftur, með tilskilinni heimild. Með breytingunni hefur skapast meira og þægilegra rými fyrir athafnir og betra útsýni fyrir kirkjugesti, segir í áðurnefndri grein.

Félagar í Kór Glerárkirkju, Petra Björk Pálsdóttir organisti og vígðir þjónar kirkjunnar eftir messuna í gær.
Við opnunina var jafnframt tekinn í notkun nýr altarisdúkur, heklaður af Viktoríu Særúnu Gestsdóttur. „Dúkurinn er einstaklega fallegur og ber vott um mikla vinnu og alúð. Viktoría fékk aðstoð við að ljúka verkinu og Ólöf Jónsdóttir í Hveragerði heklaði síðustu lykkjurnar. Jenný Karlsdóttir, sem hefur mikla þekkingu á altarisdúkum, hélt utan um verkefnið og veitti mikilvæga ráðgjöf.
Við erum afar þakklát Viktoríu, Ólöfu og Jenný fyrir þeirra framlag, sem og öllum þeim fjölmörgu sem hafa lagt verkefninu lið með vinnu, fjárframlögum, hlýhug og velvilja.“
Þótt enn eigi eftir að ljúka nokkrum verkþáttum, meðal annars við altarisrýmið og utan á kirkjunni, var ákveðið að taka Lögmannshlíðarkirkju aftur í notkun. „Það er dásamlegt að sjá kirkjuna vakna á ný og finna þann mikla velvilja sem verkefnið hefur notið. Lögmannshlíðarkirkja er aftur orðin staður þar sem fólk getur komið saman, fagnað, syrgt, átt samfélag og fundið frið,“ segir á vef Glerárkirkju.